Andvaravellir 5, 210 Garðabær
53.500.000 Kr.
Hesthús
12 herb.
172 m2
53.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1985
Brunabótamat
42.250.000
Fasteignamat
27.950.000

Garðatorg eignamiðlun. Sigurður s. 898-3708
Einstaklega snyrtilegt, rúmgott og bjart talsvert mikið endurnýjað hesthús ásamt íbúðarrými á félagssvæði Spretts við Andvaravelli 5, vestur endi. Húsið er skráð 172,5 fm, auk millilofts sem er c.a 20 fm. Alls ca 192 fm. Íbúðarýmið er ca. 55 fm og hesthúsið ásamt hlöðu er ca 137 fm.
Húsið er talsvert endurnýjað, að utan er nýleg klæðning á þaki og veggjum. Húsið er ný einangrað. Endurnýjaðir gluggar, gler, hurðir. Lagnir eru endurnýjaðar ásamt rotþró.
Húsið er mjög vel staðsett, efst í hverfinu og nálægt reiðhöll, hringgerðum og tamningagerði.  
Hesthúsið samanstendur af sjö rúmgóðum eins hesta löglegum stíum og þremu tveggja hesta stíum. Rúmgóð járninga og baðaðstaða.  Stór og rúmgóð hlaða með tvöfaldri hurð. Læst herbergi fyrir hnakkageymslu.
Stórt 241 fm gerði, auðvelt að skipt upp. Steypt taðþró er við húsið. Að framanvörðu er sér inngangur inn í góða forstofu með góðum fastaskápum, þaðan gengið inní stóra kaffistofu/eldhús og stofu, góð snyrtileg eldhús innrétting, harð parket á gólfum.bjart með góðum gluggum.  Snyrtilegt baðherbergi með salerni og vaski. Tengt fyrir þvottavél.
Sér inngangur er í milliloft þar sem er rúmgott og bjart svefnherbergi með nýjum þakkvisti og nýjum gluggum, harparket á gólfi. milliloftið er ekki inní fermetratölu eignar c.a 20 fm.
Mjög snyrtilegt og gott vel staðsett hesthús. Góð aðstaða fyrir hesta og menn.
Teikningar: https://map.is/gardabaer/@361505,400460,z5,0
Meðfylgjandi er myndskeið sem sýnir svæðið og skemmtilega umfjöllun um þá möguleika sem hestamannafélagið Sprettur hefur uppá að bjóða.
https://www.youtube.com/watch?v=IPT-1r7H8JA&feature=youtu.be 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Tyrfingsson s. 898-3708 löggildur fasteignasali  og húsasmíðameistari. [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.