Yrsufell 3, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
44.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
56 m2
44.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1971
Brunabótamat
27.950.000
Fasteignamat
38.700.000

***Eignin er SELD með fyrirvara***  Erum með áhugasama kaupendur á skrá um sambærilegar eignir

Vegna mikillar sölu vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Bjóðum upp á frítt verðmat á eignum. Hafið samband ef þið eruð í söluhugleiðingum.

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN KYNNIR TIL SÖLU FALLEGA TVEGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ STÓRUM SVÖLUM  VIÐ YRSUFELL 3 Í REYKJAVÍK. ÍBÚÐIN ER Á 2. HÆÐ, SKRÁÐ 56,8 FM AÐ STÆRÐ.

Um er að ræða rúmgóða og bjarta tveggja herbergja íbúð með stórum ca 10 fm svölum ásamt geymslu í sameign.
Íbúðin er vel staðsett á vinsælum og rólegum stað í góðu og snyrtilegu 4 hæða fjölbýlishúsi.
Grunnskóli og leikskóli eru í næsta nágrenni.  Stutt er í alla helstu þjónustu, matvörubúð, almennings samgönur, útivist og íþróttaaðstöðu.  

Bókið einkaskoðun: Unnur, sími: 8660507 eða [email protected]

Innra skipulag: forstofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, stofa/borðstofa með útgengi á svalir. Í sameign er góð sérgeymsla.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu/hol með fataskáp og dúk á gólfi.
Eldhús er með löngum björtum glugga, ljósri eldri innréttingu og dúk á gólfi
Björt og falleg stofa. Stofa og borðstofa eru í sama rými með dúk á gólfi. Gengið er út á stórar svalir úr stofu.
Baðherbergi er með flísalagðri sturtu/sturtubotn með sturtuhengi, tveimur litlum veggskápum og dúk á gólfi.
Svefnherbergi  er með dúk á gólfi og góðum fataskápum.
Rúmgóð sérgeymsla, stórt þvottahús með sameiginlegum vélum, þurkherbergi, vagna- og hjólageymsla eru í sameign.
Mjög snyrtileg sameing. Dúkur er á stigagangi og fallegt handrið meðfram stiganum.
Íbúðin er á annarri hæð, merkt 202.
Gott aðgengi og mörg sameiginleg bílastæði eru fyrir framan húsið.

***ATH ÍBÚÐIN ER Í ÚTLEIGU FRAM Í FEBRÚAR 2025***
***ATH seljandi hefur ekki búið í eigninni og mælt er með að kaupendur kynni sér vel ástand hennar. 

Nánari upplýsingar veita:
Unnur Ýr Jónsdóttir, lokið löggildingarnámi, s:8660507  [email protected]
Haraldur Björnsson, löggiltur fasteignasali, s:7878727  [email protected]



GARÐATORG EIGNAMIÐLUN ER STAÐSETT Á LYNGÁSI 11 Í GARÐABÆ.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900kr.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.