Garðatorg eignamiðlun, sölumaður Sigurður s. 8983708 [email protected]Ásabyggð 12 Flúðum. Einstaklega snyrtilegur, talsvert endurnýjaður sumarbústaður ásamt tveimur ca 15 fm. gestahúsum, bæði með wc og sturtu. Bústaðurinn er á frábærum stað í mjög skjólgóðu og grónu eldra sumarhúsahverfi. Innra skipulag. Bústaðurinn skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, anddyri og svefnloft. Geymsla við hlið anddyri. Gestahús: alrými, wc snyrting með sturtu. Stór timburverönd, nýlegur heitur pottur. Húsið er vel staðsett. Mikill gróður. Flúðir og nágreni er paradís og einhver veðursælasti staður landsins, stutt í gólfvelli, verslun, sund og veitingastaði og margt fleira. Lóðin er leigulóð frá sveitarfélaginu. Góðir tekjumöguleikar með útleigu eða tækifæri að kaupa þrjú hús í einum pakka fyrir stórfjölskylduna. Sölumaður Sigurður löggiltur fasteignasali, sími 898-3708,
[email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg Eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.