Asparholt 3, 225 Garðabær
59.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
76 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
36.050.000
Fasteignamat
54.400.000
Opið hús: 23. október 2024 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Asparholt 3, 225 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 23. október 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN OG STEINAR S. JÓNSSON Löggiltur fasteignasali [email protected] KYNNA TIL SÖLU fallega og bjarta 76,4 fm 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð(efstu) merkt 0302 þar af er geymsla í sameign 6.8fm.

Forstofa
 er með flísum á gólfi og góðum skáp.
Stofa og eldhús liggja saman með parketi og flísum á gólfi, útgengt út á góðar 7.9 fm suður svalir
Svefnherbergi er með parket á gólfi og skápum.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtu og góðri innréttingu.
Sér Þvottahús er innan íbúðar. 
Geymsla og Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Íbúðin er vel staðsett á Álftanesi og er í göngufæri við skóla, leikskóla og sundlaug.  Sameiginlegur leikvöllur í bakgarði. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Steinar S. Jónsson löggiltur fasteignasali S: 898-5254 [email protected]

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.