Garðatorg eignamiðlun s. 545-0800: Laust við kaupsamning. Gott verð. Vel við haldið 51,8 fm 5 hesta hús fyrir miðju í lengju neðst í D Tröðinni. Húsið er klætt að innan með blikki og vifta í þaki.
Í húsinu eru 5 eins hesta stíur og rúmgott opið rými með hnakka og reiðtygjageymslu. Stíur eru úr galvaníseruðu járni og plastklæðning upp á veggi í stíum til að auðvelda þrif.
Góð kaffistofa með innréttingu og borðkrók ásamt lítilli snyrting.
Við endann á gangi er rými fyrir ca. tvo stórbagga í heygeymslu og þar er nýlegur hleri út.
Heitavatnstúpa er fyrir neysluvatn og blöndunartæki í hesthúsi til þrifa. Tvö sameiginleg gerði fyrir lengjuna.
Stutt er í reiðhöll og góðar reiðleiðir.
Upplýsingar um eignina veitir: Sigurður Tyrfingsson löggiltur fasteignasali og Húsasmíðameistari s. 898-3708 eða [email protected]
Garðatorg eignamiðlun er staðsett á Garðatorgi 7 í Garðabæ.