GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu glæsilega, bjarta og fallega 3-4 herbergja íbúð með stórum palli og sérmerktu bílastæði í bílageymslu í fallegu lyftuhúsi í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Íbúðin er staðsett á einstökum og eftirsóttum stað við sjávarkambinn í Sjálandinu í góðu fjölbýlishúsi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem útivistarsvæði, fallegar gönguleiðir meðfram sjónum, skóla, leikskóla og þjónustu við eldri borgara. Mjög fallegt útsýni út á Arnarnesvoginn er úr íbúðinni. Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð með 2 svefnherbergjum, skjólsælum palli, bílastæði í lokaðri bílageymslu ásamt geymslu í sameign. Mögulegt er að bæta við aukaherbegi. Fallegar innréttingar og gólfefni. Íbúðin er alls skráð 123,2fm að stærð, þar af er geymsla skráð 14,5 fm og gengið er beint inn í íbúðina úr sameign.
Allar upplýsingar um eignina veitir Unnur, sími: 8660507 eða [email protected]Nánari lýsing:Komið er inn í
forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er stór, björt og með fallegu útsýni til sjávar. Parket er á gólfi. Á teikningu er herbergi III sýnt þar sem borðstofa er í dag. Einfalt er að bæta herbergi þar við aftur.
Eldhús er parketlagt og með fallegri eikarinnréttingu, ljósri borðplötu úr stein, ofni í vinnuhæð, helluborði og háfi yfir. Gengið er út á stóran pall úr eldhúsi.
Inn af eldhúsi er
þvottahús með innréttingu, vinnuborði yfir vélum og flísum á gólfi.
Herbergi I er parketlagt með mjög góðu skápaplássi.
Herbergi II er með fataskáp og gólf er parketlagt.
Baðherbergið er rúmgott með fallegri eikarinnréttingu, stórum speglaskáp, góðu skápaplássi, flísalögðu gólfi og veggjum. Þar er bæði baðkar og flísalögð sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Sameign hússins er mjög snyrtileg. Lyfta er í húsinu og í kjallar er sér geymsla, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla sem og sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Alls eru 6 íbúðir í húsinu, 2 á hverri hæð.
Íbúðin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.
Ath: Útgefin teikning af íbúðinni er ekki í samræmi við innra skipulag íbúðarinnar í dag.
Nánari upplýsingar veita:Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s:
8660507 eða [email protected]Steinar S. Jónsson, löggiltur fasteignasali, s:
8985452 eða [email protected]Vegna mikillar sölu vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Bjóðum upp á
frítt verðmat á eignum. Hafið samband ef þið eruð í söluhugleiðingum.
GARÐATORG EIGNAMIÐLUN ER STAÐSETT Á LYNGÁSI 11 Í GARÐABÆ.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900kr.
Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.