Seld með fyrirvara. Garðatorg eignamiðlun. Sölumaður: Sigurður s. 898-3708
Snyrtileg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð 86,6 fm. á annari hæð, endaíbúð, gluggar á þrjá vegu. Íbúðin er á frábærum stað í Smárahverfinu í Kópavogi í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, leikskóla, skóla og útivistarsvæði.
Helstu upplýsingar:Stærð íbúðar: 86,6 fm. Björt íbúð með gluggum á þrjá vegu. Suður-svalir með útgengi úr stofu. Sérgeymsla og sameiginleg hjóla-/vagnageymsla í kjallara.
Eignin skiptist í:Forstofa með fataskáp
Hol/miðjurými þaðan sem gengið er í önnur rými íbúðar
Stofa/borðstofa, björt og rúmgóð, útgengi á suðursvalir
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, góður borðkrókur.
Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með fataskápum
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í kjallara.
Sameiginleg hjóla, vagnageymsla. Þvottaherbergi.
Gólfefni:
Harð-parket á gólfum íbúðarinnar, fyrir utan flísalagt anddyri, baðherbergi og eldhúsi.
Staðsetning:Stutt í skóla, leikskóla, verslanir, íþróttasvæði, náttúru og stofnbrautir. Húsið stendur í rólegri og eftirsóttri götu í Smárahverfi.
Möguleiki er að kaupa stæði í bílgeymslu ( stæðið er í eigu annars )
Mjög góð eign fyrir þá sem leita að bjartari, vel skipulagðri og þægilegri íbúð á vinsælum stað í Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 898-3708. [email protected]