Garðatorg eignamiðlun kynnir: Vel skipulagt og fallegt einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr á vinsælum stað í Garðabæ. Eignin er samtals 210 fermetrar að stærð, þar af er bílskúrinn 54 fermetrar. Lóðin er 850 fermetrar og er á henni byggingarreitur sem býður upp á möguleika á stækkun hússins.
Helstu atriði:- Ein hæð
- Tvöfaldur bílskúr
- Vel hirtur garður og stór lóð
- Byggingarreitur með möguleika á stækkun
- Rólegt og barnvænt hverfi
- Aðeins sýnt í einkaskoðun fyrir áhugasama hjá Ragnari, [email protected] eða í s. 899-5901
Skipulag:- Tveir inngangar að framanverðu, annar á milli bílskúrs og íbúðar og hinn aðalinngangur
- Rúmgott anddyri með fataskápum
- Opið rými með eldhúsi, borðstofu og sjónvarpsholi
- Rúmgóð stofa, eitt þrep niður frá borðstofu/holi
- Útgengt á suðurverönd og út í garð úr borðstofu
- Hol þar sem er rúmgott svefnherbergi og útgengi inn á gang þar sem er gestasnyrting (notuð sem geymsla), þvottahús, innri geymsla og innangengt í bílskúr. Útgengi í baklóð og útihurð milli bílskúrs og íbúðar.
- Rúmgóður tvöfaldur bílskúr með tveimur hurðum. Möguleiki á ibúð.
- Í svefnherbergisálmu: þrjú svefnherbergi og flísalagt baðherbergi með sturtu.
Endurbætur:- Parket og innihurðir hafa verið endurnýjuð
- Þak á bílskúr, þakrennur, skolplagnir, rafmagn og ofnar hafa verið yfirfarnir og endurbætt
- Eldhús og frönsk hurð út á verönd hafa verið endurnýjuð
- Verönd með uppfærðum palli
- Gler og gluggar að mestu í góðu ástandi
- Þakjárn þarfnast málunar
Staðsetning:- Eignin er staðsett á einni vinsælustu götu Garðabæjar, í barnvænu og rólegu hverfi. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, íþróttamannvirki og útivistarsvæði – allt í göngufæri.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:Ragnar G. Þórðarson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 5901
Netfang:
[email protected]Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð